Draumur í dós
Eins og ég hef sagt áður, er þetta árið sem litlu draumarnir mínir og hver veit nema stóru líka eiga að rætast. Janúarmánuðurinn gaf mér Kenya að vinna sjálfboðavinnu eins og ég hef látið mig dreyma um lengi og nú er febrúar langt komin þannig að það er ekki eftir neinu að bíða en að koma með næsta draum.
Ég viðurkenni að ég hef alltaf haft svolitla sýniþörf og í tíu ár frá 7 ára til 17 ára aldurs æfði ég Jazzballet þar sem sú þörf fékk að blómstra. Í menntaskóla fengu leikrænir tilburðir mínir að blómstra þar sem ég tók þátt í uppfærslum á hverju ári og stundum fleiri en einni uppfærslu. Háskólaárin hafa svo farið í bókalestur og stress við að eiga pening út mánuðinn þannig að kenndir mínir til sýniþarfar hafa ekki verið að njóta sín (oj, perraleg setning). Ég hef þó alltaf fengið meiri og meiri áhuga á söng og tónlist og hef þó aðeins fengið að blómstra á því sviði í brúðkaupum og á þorrablótum. Þegar ég var lítil vildi ég læra á hljóðfæri en ég þurfti að velja á milli þess og jazzballetsins og að sjálfsögðu valdi ég jazzinn því þar gat ég sýnt mig svolítið með hoppum og spörkum.
Ég ákvað að draumur númer tvö ætti að rætast núna og það er að læra á píanó. Ched gaf mér píanóbók í afmælisgjöf og þar með var fyrsta skrefið tekið. Hann er svona búin að vera að fara yfir nokkur atriði með mér en þar sem ég er ekki læs á nótur eða nokkuð þá er þetta mikil vinna. Ég leitaði á netinu að kennara en komst að því að það er of dýrt fyrir mig og því ætla ég að kaupa mér ódýrt hljómborð og reyna mig áfram að tilsögn tjeddans og svo er víst fullt af kennsluefni á netinu. Vonandi gengur þetta vel.
Svo er í raun þriðji draumurinn að rætast líka....
Ég hef náttúrulega alltaf dreymt um að syngja í Eurovision.....og eins og allir vita þá vann ég Eurovision á Íslandi þetta árið. Þannig að í rauninni er ég að fara að syngja fyrir Íslandshönd núna. Ha?? Hvað segiði um það??