mánudagur, nóvember 05, 2007

Lífið er eitthvað svo skemmtilegt, ég er sífellt hlægjandi.

Kannski er það vegna þess að ég er búin að endurheimta Elvuna mína sem léttir mér heldur betur lífið hérna í Odense.

Helgin mín var frábær og prýddi J-dag þar sem jólabjórinn kom til byggða og bíó-kaffihúsaferð með góðu fólki þar sem við sáum "Stardust" sem ég mæli með. Á kaffihúsinu eftir myndina var allt fyndið. Ása var alltaf að girnast matinn á borðunum í kring og ég sneri mér í hvert skipti úr hálslið til að sjá hvað hún var að tala um, virkaði því miður eins og við værum að baktala fólkið. En þetta hélst svona út allt kvöldið.

Ása: mmm, damn hvað þær eru með girnilegt
Sara snýr sig úr lið

Ása: mmm, hvað ætlið þær séu að borða?
Sara snýr sig úr lið

Ása: ættum við að panta svona eins og þær eru með?
Sara snýr sig úr lið

Ég hefði getað dáið úr hlátri, þetta var bara refleks...ég réði ekki við mig. Leit alltaf snöggt aftur fyrir mig.

Morgundagurinn minn verður busy en ég elska það. Sykursýkisfyrirlestrar til 2 svo söngtími og svo kúrsus um bæklunarskurðlækningar.

Við Elva erum að fara á þennan kúrsus saman og aðal áhyggjuefnið er hvort við verðum að vera rakaðar hahaha Ég held ég fari í það núna að vinna á þyrnigerðinu á fótunum á mér svona in case ég þurfi að strippa á morgun.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

hahaha!

og svo þurftum við ekkert að strippa!!

love you too

Elva

11:15 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home