miðvikudagur, nóvember 29, 2006

Ég múnaði framan í lækninn minn...

...í dag.

Ef ég hefði vitað að hann vildi skella sprautunum beint í rassinn hefði ég ekki mætt í þessum blúndu g-strengsnærbuxum sem ég var í, í dag. Ég fékk sprautur í sitthvora rasskinn og svo eina í öxlina.
Ég kann voða vel við lækninn minn, hann heitir Carsten og er komin svona vel yfir þrítugt þannig að hann er ungur læknir. Ég hef ekkert farið til læknis síðan ég flutti hingað en upp á síðkastið hef ég verið að fara með svona minniháttar vandamál. Eins og í dag fékk ég vaccine sprautur fyrir ferðina mína. Hann endar alltaf á að spurja "har du det ellers ikke skidt paa nogen maade" eins og hann vilji að ég komi með eitthvað krassandi fyrir hann. En ég svara bara "nej, jeg föler mig bare rask".

Hann skrifaði svo uppá malaríulyf fyrir mig svo ég leggist ekki í rúmið með malaríu. Í kenya herjar að malaría og þar sem ég vil ekki deyja eða verða mjög veik þá þarf ég kaupa þessi lyf fyrir 1400 dkr eða hátt í 20000 kr íslenskar. úff....ferðakostnaðurinn er alltaf að hækka.

þriðjudagur, nóvember 28, 2006

Danskar skrifstofukonur

Hvað get ég sagt.... danskar skrifstofukonur eru ekki bestu vinkonur mínar og ég lenti í þeirri verstu á föstudaginn.

Ég mætti á skattstofuna bara til að fá nýtt skattkort ekkert meira alvarlegt en það. Ég viðurkenni alveg að ég var kannski ekki alveg nógu vel undirbúin...hélt að það væri ekkert mál að fá útprentað nýtt kort.

Á undan mér í röðinni voru 20 manns og þetta var ekki hraðþjónusta því fólk þurfti að spurja spurninga þannig að ég beið þarna standandi ansi lengi. Svo kom að mér og ég brosti til "vinkonunnar" og var kurteis...bað um nýtt kort en hún var ekki ánægð. Stóð þarna á móti mér og bara öskraði. Var svo rosalega fúl út í mig fyrir að vera ekki með skattkortið sem þau hefðu sent mér í pósti. Var sko ekki viss um að ég væri ekki bara búin að nota það aftur á bak og áfram en ég sagði henni að ég væri nemi og hefði því ekkert notað það! HVAÐ MEÐ FADL????? öskraði hún. ÞÚ GETUR EKKERT BARA KOMIÐ HÉR OG BEÐIÐ UM SKATTKORT ÞEGAR ÞÚ ÁTT SKATTKORT, ÉG VIL SJÁ ALLA LAUNASEÐLANA SEM ÞÚ FÉKKST Á ÞESSU ÁRI.

Hún fór eitthvað til að athuga og á meðan fattaði ég hvað þetta var absúrt móment. Það er verið að öskra á mig. Þegar hún kom tilbaka sagði ég næstum hvíslandi "en fyrirgefðu...fæ ég þá ekki skattkortið". Þá kom önnur hruna og hún var það slæm að þegar ég gekk í burtu þá glápti fólkið sem beið eftir aðstoð á mig.

Þar sem ég er svo mikill aumingi labbaði ég út úr skattstofunni með tár í augunum eftir að hafa staðið þar í 40 mín í bið, búið að öskra á mig og fékk ekkert skattkort.

föstudagur, nóvember 24, 2006

Þar sem það jaðrar við vinaslitum....

....ætla ég að skrifa hér hvað er að fara að gerast þó það sé ekki alveg komið á hreint. Ég ætla bara að láta þetta gerast þannig að ég hendi mér í að setja þetta á netið.

Ég byrja á því að fara heim 14 des og ætla að eiga aðventuna og jólin með fjölskyldunni minni. Þar sem ég hef ekki haldið jól með þeim síðustu 2 jól þá verður þetta kærkomið og ég ætla að njóta þess í botn.

Eftir jólin flyg ég til London 30 des og mun eyða áramótunum þar í fínu íbúðinni hans Silla bró. Hana hef ég bara útaf fyrir mig og svo get ég rölt um miðbæinn þar sem íbúðin er staðsett í þar.

Á nýársdag ætla ég svo að fljúga frá London til Nairobi í Kenya og taka þátt í projecti sem kallast "the kenya-project" þar sem ég mun starfa á læknaklinik og aðstoða við að lækna veikt fólk og byggja upp staðinn. Byggja skóla og heilbrigðisstofnun. Eftir að ég hef starfað þarna í 2 vikur í þessu projekti ætla ég í 2 vikna safari um kenya.

Ched dúlla bauð þessu pari í mat sem eru krakkar sem eru að fara að taka þátt í þessu sama projekti og ég. Þau eru sænsk og ég þekki þau ekki enn. Þess vegna fannst mér svo sætt þegar hann tilkynnti mér að hann hefði boðið þeim í mat svo ég gæti kynnst þeim svo ég væri ekki alveg að fara ein. (ekki alveg bældi íslendingurinn sem ég er með)

Ég er að fara til læknis í næstu viku til að vera bólusett fyrir gulsótt og lifrarbólgu sem og fá malaríulyf svo ég verði ekki veik þarna úti.

Jæja, þarna hafið þið leyndarmálið mitt.....ég skil ekki að þið hafið ekki fattað þetta hahaha

Hint 2

Í dag pantaði ég tíma hjá lækni og fer í næstu viku til hans...sem er mjög mikilvægt áður draumurinn geti ræst

Hint

Það sem ég er að fara að gera er partur af persónulegu projekti sem kallast "Draumar rætast 2007"

Svar við spurningu 3

Parið sem kemur í mat er að fara að gera það sama og ég....

Nú langar mig að staldra aðeins við......

og svara spurningu í lið númer 2.

Hvað haldiði að sé að gerast ef ég segi ykkur að Teddi litli ætlar að vera í USA yfir áramótin með fjölskyldu sinni þar og er því alls ekkert að fara að koma með mér til London yfir áramótin.

Hvað haldiði að sé að gerast ef ég segi ykkur að það sé bara alls enginn að fara koma með mér til London yfir áramótin. Ég fer alein og ætla að gista alein í íbúðinni hans Silla.

Kveikir þetta á einhverjum bjöllum. Hvað er að gerast??? Hvað er ég að fara að gera?

fimmtudagur, nóvember 23, 2006

Það sem er að gerast.....

....númer þrjú!

Kærastinn minn tilkynnti mér síðustu helgi að hann væri búinn að bjóða pari í mat næstu helgi sem við þekkjum ekki neitt. Þetta gerði hann bara fyrir mig, svo ég gæti spjallað við þau. Hvaða fólk ætli þetta sé????


p.s þið sem vitið, ekki segja neitt..please

miðvikudagur, nóvember 22, 2006

Það sem er að gerast....

....númer tvö.

Búin að fá lánaða íbúðina hans Silla bróðurs sem er staðsett í miðbæ London yfir áramótin. ójá og með hverjum skildi ég vera að fara til London um áramótin??

mánudagur, nóvember 20, 2006

Það sem er að gerast.....

Númer eitt....

Komin með flugmiðann til Íslands....kem 14 des þannig að það eru bara 24 dagar í mig!!!

Svei mér þá!!!

Það er bara allt að gerast!!!

Updeit smátt og smátt ;)

p.s Bryndís, bannað að kjafta frá á kommentunum. :D

fimmtudagur, nóvember 16, 2006

Klukkan er 8 á fimmtudagsmorgni...

.....og ég skreiðist með hálf lokuð augun úr lestinni frá Svendborg. Ég labba inní lestarstöðina og niður rúllustigann og þar sem augnlokin eru svo þung þá leyfi ég mér að loka fyrir augun aðeins agnarögn. Ég er klædd gamalli úlpu og hárið er tekið saman í tagl. Farðinn sem ég hafði sett á andlit mitt kvöldinu áður er farinn... Ég vil bara komast í rúmið mitt en þarf bara að koma mér þangað og það er þrautin þyngri.
Er ég kem út úr lestarstöðinni rekst ég á félaga:

Félagi: Varstu að djamma???? (augu hans glóa og ég sé hvernig ég hlaða inn rokkaraprikum í hans augum)
Ég: Já, mar!!! (leik mig blindfulla með tunguna út og skakklappast um)
Félagi: Nei, í alvöru!!!! Hvað varstu að gera?????
Ég: Nei nei, ég var bara á vakt
Félagi: á vakt? já, ok (augun hætta að glóa og rokkaraprikinn falla niður í mínusstig) sjáumst!
Ég: sjáumst... (loka augunum aftur og labba skref fyrir skref í átt að hvíldinni, ég verð bara rokkari næst...ég þarf bara að sofa fyrst)

þriðjudagur, nóvember 14, 2006

Bachelor, eldingar, Svendborg, jólastemmning og sjómannsfrú

Já, hvað er að gerast hjá mér núna??

Kláraði skólann á fös og gæti því sagt að ég sé Bachelor (Bsc) en þar sem þessi gráða nýtist mér ekki neitt þá er þetta ekkert merkilegt. En þar sem ég hef lært að fagna alltaf öllum áföngum þá segi ég "SKÁL"!!!!!!! Næst er það kanditatinn.

Ég er orðin leið á rigningunni hérna í Danmörku en það er víst ekkert við henni að gera og ég get víst ekki kvartað þar sem veturinn er skollinn á, á íslandi. Á hverjum degi lendi ég í hellidembu á meðan ég hjóla eða labba á milli staða og á laugardaginn voru endalausar eldingar og í hvert skipti hrópaði ég upp yfir mig þegar himininn lýsti upp. Ég hræðist að ég verði fyrir eldingu....og þar með er ég búin að finna eitthvað sem ég hræðist. Hvað hræðist þú?

Ég ætla að reyna að safna mér peningum svo ég geti látið draum rætast. Fór á vakt í morgun í Svendborg. Þurfti að vakna kl 05:00 og tók lestina 05:38, alveg ótrúlegt sko. Vaktin byrjaði kl 07:00 sem mér finnst rosalega snemmt en maður er harðjaxl og lætur sig hafa það.
Ég passaði gamla konu sem var með tracheastoma og þurfti að sjá til að hún væri að fá nóg súrefni, taka blóðþrýsting, púls og mettun á klukkutíma fresti og halda í höndina á henni þegar henni leið illa. Mikið rosalega er erfitt að verða gamall og veikur....allt í lagi kannski að verða gamall en þegar maður verður veikur líka þá er lítið að lifa fyrir. Hún þakkaði mér svo vel fyrir litla hluti eins og þegar ég færði koddan betur undir hana eða færði til sængina eða gaf henni að drekka.....allt svona gerði svo mikið fyrir hana...sjálfsagðir hlutir fyrir okkur.

Jólaljósin mín eru komin upp og ég stelst stundum til að hlusta á jólalög..ég hlakka til að eyða jólunum á Íslandi. Búin að vera síðustu 2 jól í Danmörku þannig að það er komin tími til að ég verði með fjölskyldunni á jólunum.

annars er ég hress og hef gerst sjómannsfrú næstu vikur hahaha, víhh!!!

laugardagur, nóvember 04, 2006

Nýjasta djókið!

"She is not retardet, she is just Icelandic"

miðvikudagur, nóvember 01, 2006

Vilja þeir ekki bara drepa mig?

Það er svooooo íííííískalt í Danmörku núna.
Í morgun hjólaði ég frá rassgati niður í bæ og það var frosin rigning og mótvindur alla leiðina. Ég mætti í skólann í köldum gallabuxum með kaldar og blautar tær og sat í tímum til kl 16. Nú sit ég heima í ullapeysu og ullarsokkum með tvær sængur og tvö flísteppi en næ ekki hita í kroppinn minn enda vilja ofnarnir ekki hitna hérna. Danir alltaf að spara orkuna. Ég sver það, vilja þeir ekki bara drepa mig.

-ein pirruð