fimmtudagur, janúar 17, 2008

Benny´s anatomy

Þar sem ég geng um ganga spítalans nakin með stetóskópið um hálsinn er komin tími á sögustund.

Læknanemi sem er að hefja göngu sína í praktík, hefur erlendan hreim og alveg óvart hefur rangt kyn er mjög auðveld bráð fyrir hvers konar pirringslosun og hef ég oftar en ekki lent í því að sitja undir skömmum. Unglæknir hvíslaði að mér eftir eitt kastið sem ég fékk að heyra, "ég hef aldrei verið skammaður eftir að ég útskrifaðist og aumingja þú, þú hefur ekki einu sinni rétt kyn". Lætur mig velta því fyrir mér hvað við höfum þá lítið breyst í aldanna rás, svo upptekin af stöðu og kynjaskiptum.
En þetta var ekki sagan sem ég ætlaði að segja.

Ég er núna búin að vera í 2 vikur á spítalanum og nú hefur það þróast þannig að ég hef sjálf 4 sjúklinga sem ég sé um og tala við. Stundum er ég að springa úr egóuppsöfnun og finnst eins og ég geti gert allt í heiminum en svo kemur sífellt hindrun sem sýnir mér að ég er ekki alveg eins örugg og ég held sjálf.
Einn af mínum sjúklingum var með erfiðleika við að losa þvag og því var alveg upplagt að ég skyldi rannsaka hvort ég fyndi eitthvað sem væri kannski að pressa á þvagrásina. Það þarf ég að gera með að fara endaþarmsleiðina.
Ég með fullt púst af egói geng inn til sjúklingsins míns og spjalla við hann um hans líðan...svo kemur að því...

Ég: Ég ætla að fá leyfi til að rannsaka þig
SJ: Já, sjálfsagt
Ég: þar sem þú átt erfitt með þvaglosun þarf ég að athuga hvort það sé eitthvað sem sé fyrir
Sj: allt í lagi
Ég: ég veit þetta getur verið óþægilegt en ég þarf að ...... til að ég finni það þarf ég að ...... er í lagi að ég.... (stamandi kem ég ekki orðum að því)
Sj: já, gerðu bara það sem þú þarft að gera... (veit ekki upp né niður)
Ég: ok (klæði mig í gúmmíhanska)
Sj: (hræðslusvipur)
Ég: snúðu þér bara á hliðina, ég þarf að fara þá leið..þú veist.
Sj. ahh, ég skil

Svei mér þá, ég kom út og skellti hausnum á mér við vegg..hvernig biður maður um að fá að gera svona skoðun???

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

endilega halda áfram að blogga :D

hlakka til að heyra fleiri endaþarmssögur

kv. Bryndís

2:06 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

he he segir baður ekki bara jæja glentu nú í sundur he he
kveðja Gunna frænka

7:26 e.h.  
Blogger Unknown said...

Ertu ennþá á vafri, nakin á göngum spítalans með stetoskópið..??? skrítið að maður hafi ekki rekist á þig hehehe ;)

9:43 e.h.  
Blogger Dilja said...

Æ sara plís ekki blogga svona mikið! Ég held ekki í við þig, næ ekki að lesa svona mikið í einu.

hihi
Gleðilega páska skottið mitt. Vona að þú hafir notið þín vel.

12:45 f.h.  
Blogger Halldís said...

ég er búin að setja á þig link, er það ekki búst til að blogga meira reglulega?

koma svo!

11:07 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Halló Sara. Þarna ertu búin að geyma þig. Bjargaðir geðheilsunni í dag, ekki slæmt það ;o)
Héðan í frá mun ég taka þig með morgunkaffinu (fruss)ásamt fleiri vinum.
Knús frá eldgamla íslandi.
Kolla (former odensebúi)

3:26 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home