Gleðileg jól!
Í dag er hátíð í bæ. Margt sem þarf að gera en það bara stemmning í því. Við Hjálmar vöknuðum klukkan 9 og horfðum á teiknimyndir í sjónvarpinu og fórum svo í Kringluna að klára síðastu gjafirnar. Það var fyndin stemmning þar, unglingskrakkar að afgreiða í búðunum og alveg búin á því eftir að hafa verið í brjálæðinu síðustu daga að vinna, lágu fram á borðin. :)
Ég ætla að njóta mín í kvöld með fjölskyldu minni og borða hamborgarahrygg og svo er ég búin að koma auga á nokkra girnilega pakka til mín sem ég hlakka til að opna.
Ég óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýja árinu.