föstudagur, maí 09, 2008

Það er rosa gott...

...eftir skriftir að skella sér út í sólina og lenda í smá ævintýrum. Í gær ákvað ég að labba bara út og sjá hvað myndi gerast. Ég byrjaði á að rölta til Valdísar og Gauta og fá að hlaða símann minn því hleðslutækið varð eftir á Íslandi, góð Sara. Þegar ég kveikti á símanum flæddu smsin inn og þá sá ég að Mathilda bekkjarsystir hafði sent mér sms um tónleika í musikbibliotekinu sem ég rölti á. Það var rosa gaman....það er svo mikið að hæfileikaríku fólki þarna úti og ég elska þegar ég næ að láta heilla mig með tónlistinni.

Þessi hljómsveit heitir Muddle og þau eru þrjú að spila, Maria sænsk sem spilar á gítar og syngur og svo einn á bassa og einn á trommur. Mathilda, Christine og Björn sem eru með mér í skólanum tróðu svo upp með í nokkrum lögum. Rosa flott.

Ekki má gleyma dýrindis fisknum sem ég fékk svo hjá Margréti Láru og Jóa og jú, súkkulaðikökunni sem Jói bakaði. Hann kann þetta strákurinn.

Ég er núna að fara að lenda í ævintýrum í Köben og er að hugsa um að vera klædd pilsi. ;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home