mánudagur, nóvember 12, 2007

Fór í bókabúðina í dag og ákvað að kaupa mér bók sem mig vantar fyrir næstu blokk. Ég fer að afgreiðsluborðinu og skelli bókinni á borðið og brosi til afgreiðslukonunnar.
"Jeg vil gerne have den her", segi ég. Þar sem hún er að stimpla bókina inn í kassann kemur afgreiðslukona 2 askvaðandi á meðan hún talar í símann um eitthvað bókavesen. Hún bendir og bókina sem ég er að kaupa og hrisstir hausinn og heldur svo áfram að tala í símann.
Þar sem við skyldum ekki hvað gekk á þá biðum við í smá stund eftir að afgreiðslukona 2 væri búin í símanum.

Er hún leggur tólið á lítur hún til okkar þar sem við stöndum með spurnarsvip.
"Já, það er nefnilega 25% afsláttur af þessari bók á föstudaginn og mér datt í hug að þú vildir frekar kaupa hana þá.
Svona lagað fíla ég.

4 Comments:

Blogger Unknown said...

Díí..af hverju var hún ekki þarna þegar ég var að versla!?? ég keypti fjárans psykiatri bókina og er mikið að spá í að skila henni og kaupa hana aftur á föstudaginn! ;)

2:48 e.h.  
Blogger Dilja said...

hæ baby,
dreymdi þig svo mikið í nótt,
gott að konan í búðinni er góð við þig;) þu varst e-ð að vola í draumnum nefnilega...

kveðjur
frá san francisco

5:20 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hjördís mín, þú þarft að fara að læra að sýna meiri brjóst!

11:11 e.h.  
Blogger Unknown said...

heheheh...get ég bókað tíma í brjóstasýningarkennslu hjá þér Miss. Screamer?? :D

11:53 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home