laugardagur, maí 17, 2008
þriðjudagur, maí 13, 2008
Hvað er málið með....
....að beygla fótinn undir sig og hrynja niður í götuna og liggja þar kylliflöt eins ósjálfbjarga og maður getur orðið. Þetta gerðist fyrir mig...dísús. Djöfulli sexy stelpan!
föstudagur, maí 09, 2008
Það er rosa gott...
...eftir skriftir að skella sér út í sólina og lenda í smá ævintýrum. Í gær ákvað ég að labba bara út og sjá hvað myndi gerast. Ég byrjaði á að rölta til Valdísar og Gauta og fá að hlaða símann minn því hleðslutækið varð eftir á Íslandi, góð Sara. Þegar ég kveikti á símanum flæddu smsin inn og þá sá ég að Mathilda bekkjarsystir hafði sent mér sms um tónleika í musikbibliotekinu sem ég rölti á. Það var rosa gaman....það er svo mikið að hæfileikaríku fólki þarna úti og ég elska þegar ég næ að láta heilla mig með tónlistinni.
Þessi hljómsveit heitir Muddle og þau eru þrjú að spila, Maria sænsk sem spilar á gítar og syngur og svo einn á bassa og einn á trommur. Mathilda, Christine og Björn sem eru með mér í skólanum tróðu svo upp með í nokkrum lögum. Rosa flott.
Ekki má gleyma dýrindis fisknum sem ég fékk svo hjá Margréti Láru og Jóa og jú, súkkulaðikökunni sem Jói bakaði. Hann kann þetta strákurinn.
Ég er núna að fara að lenda í ævintýrum í Köben og er að hugsa um að vera klædd pilsi. ;)

fimmtudagur, maí 08, 2008
Skrifa aftur
Ég hef ákveðið að hripa nokkur orð hér þar sem ég er að skrifa rannsóknarverkefnið mitt þessa dagana og kannski geta bloggskriftir aðeins frjóvgað hugann.
Veðrið er yndislegt úti, allt svo bjart og mikið líf á götunum. Ég er búin að komast að því að ég er ekki tilbúin að flytja til Íslands strax, ég myndi sakna danska lífsins of mikið. En þannig hugsa ég nú ekki alltaf.....nú er svo bjart og hlýtt og ég elska að vera í pilsi án þess að verða kalt. Svo er ég að fíla mig ansi mikið með sólgleraugu, labba um allt með stút á vörunum.
Ég fór yfir helgina í stutt stopp til Íslands og það var fínt, bara sama og alltaf. Alltaf gott að líta við til að sjá að maður er ekki að missa af neinu. Ég á því malt, skyrdrykk og SS-pulsur inní ísskáp núna, kannski ég grilli þær bara í kvöld..hver veit.

Bara til að monta mig smá, þá er hér í veðurspáin fyrir vikuna :)
fimmtudagur, janúar 17, 2008
Benny´s anatomy
Þar sem ég geng um ganga spítalans nakin með stetóskópið um hálsinn er komin tími á sögustund.
Læknanemi sem er að hefja göngu sína í praktík, hefur erlendan hreim og alveg óvart hefur rangt kyn er mjög auðveld bráð fyrir hvers konar pirringslosun og hef ég oftar en ekki lent í því að sitja undir skömmum. Unglæknir hvíslaði að mér eftir eitt kastið sem ég fékk að heyra, "ég hef aldrei verið skammaður eftir að ég útskrifaðist og aumingja þú, þú hefur ekki einu sinni rétt kyn". Lætur mig velta því fyrir mér hvað við höfum þá lítið breyst í aldanna rás, svo upptekin af stöðu og kynjaskiptum.
En þetta var ekki sagan sem ég ætlaði að segja.
Ég er núna búin að vera í 2 vikur á spítalanum og nú hefur það þróast þannig að ég hef sjálf 4 sjúklinga sem ég sé um og tala við. Stundum er ég að springa úr egóuppsöfnun og finnst eins og ég geti gert allt í heiminum en svo kemur sífellt hindrun sem sýnir mér að ég er ekki alveg eins örugg og ég held sjálf.
Einn af mínum sjúklingum var með erfiðleika við að losa þvag og því var alveg upplagt að ég skyldi rannsaka hvort ég fyndi eitthvað sem væri kannski að pressa á þvagrásina. Það þarf ég að gera með að fara endaþarmsleiðina.
Ég með fullt púst af egói geng inn til sjúklingsins míns og spjalla við hann um hans líðan...svo kemur að því...
Ég: Ég ætla að fá leyfi til að rannsaka þig
SJ: Já, sjálfsagt
Ég: þar sem þú átt erfitt með þvaglosun þarf ég að athuga hvort það sé eitthvað sem sé fyrir
Sj: allt í lagi
Ég: ég veit þetta getur verið óþægilegt en ég þarf að ...... til að ég finni það þarf ég að ...... er í lagi að ég.... (stamandi kem ég ekki orðum að því)
Sj: já, gerðu bara það sem þú þarft að gera... (veit ekki upp né niður)
Ég: ok (klæði mig í gúmmíhanska)
Sj: (hræðslusvipur)
Ég: snúðu þér bara á hliðina, ég þarf að fara þá leið..þú veist.
Sj. ahh, ég skil
Svei mér þá, ég kom út og skellti hausnum á mér við vegg..hvernig biður maður um að fá að gera svona skoðun???

þriðjudagur, nóvember 13, 2007
Syngi syng
Ég átti mjög góðan söngtíma í dag. Blastaði Noruh Jones eins og ég fengi borgað fyrir það. Norah Jones er eins og allir vita mjög hugnæm söngkona og syngur svona falleg og róleg lög sem gott er að hlusta á áður en maður fer að sofa. Einhvernveginn tókst mér með hjálp frá söngkennaranum mínum að taka Noruh í svona frekar rokkara útgáfu, ég verð samt að viðurkenna að ég þarf að slípa þetta ansi mikið til svo að þetta hljómi fallega en ég kom samt sjálfri mér á óvart.
Söngkennari minn er líka svo fyndin... Eftir tímann ræddi hún við mig um hvað það væri mikilvægt að gera lögin að sínum því það væri það sem bransinn væri að leita að. Eitthvað nýtt og það hafi einmitt verið það sem við vorum að gera með Noruh. Þá urðu þessi orðaskipti til:
Ég : Þannig að þegar ég verð fræg þá verð ég þekkt sem SERAH THe.... (hugsa mig um smá stund)
Kennarinn: Screamer....Serah the screamer
Mér finnst það ógeðslega fyndið þó ég geti ekki sagt að það hljómi neitt rosalega vel sönglega séð.

mánudagur, nóvember 12, 2007
Fór í bókabúðina í dag og ákvað að kaupa mér bók sem mig vantar fyrir næstu blokk. Ég fer að afgreiðsluborðinu og skelli bókinni á borðið og brosi til afgreiðslukonunnar.
"Jeg vil gerne have den her", segi ég. Þar sem hún er að stimpla bókina inn í kassann kemur afgreiðslukona 2 askvaðandi á meðan hún talar í símann um eitthvað bókavesen. Hún bendir og bókina sem ég er að kaupa og hrisstir hausinn og heldur svo áfram að tala í símann.
Þar sem við skyldum ekki hvað gekk á þá biðum við í smá stund eftir að afgreiðslukona 2 væri búin í símanum.
Er hún leggur tólið á lítur hún til okkar þar sem við stöndum með spurnarsvip.
"Já, það er nefnilega 25% afsláttur af þessari bók á föstudaginn og mér datt í hug að þú vildir frekar kaupa hana þá.
Svona lagað fíla ég.