þriðjudagur, september 05, 2006

Home again....

Eftir annasamt og lærdómsríkt sumar er ég komin heim til Odense í skólastressið.
Ég sat við hliðina á dönskum feðgum í fluginu á leiðinni hingað og þeir voru svolítið sérstakir. Sonurinn starði stíft á stólbakið fyrir framan sig ALLA leiðina nema í eitt skipti þá reis hann rosalega snöggt á fætur til að fara á klósett, og þar sem ég var við ganginn þá þurfti ég að standa upp. Mér brá svo þegar hann stóð svona snöggt upp að ég var næstum dottin en náði svo að færa mig til svo að hann kæmist. Eftir klósettferðina kom hann aftur og settist og hélt áfram að stara. Pabbinn var alltaf að tromma á fullu á lærin á sér. Mig langaði að segja "Bare rolig man" en ég hallaði mér bara aftur og lokaði augunum.

Lestarferðin var svipuð, nema þá að í sama vagni og ég voru blindfullar kellur frá Slagelse (þær fóru allavega þar út) sem hlógu ALLA leiðina. Stundum gat ég ekki annað en hlegið með því þetta voru svolítið smitandi rokur sem þær tóku. Ég reyndi að læra stoppistöðvarnar utanað frá Kastrup til Odense og ætla að athuga hvort ég muni...Köbenhavns hovedbanegaard- Höje Taastrup-Roskilde-Ringsted-Korsör-Slagelse-Nyborg-Odense....það vantar örugglega í þetta en þetta er það sem minnið segir 3 dögum seinna.

Já, og svo bara allt brjálað í fréttunum...terroristar í odense að skipuleggja árás. Nú verður maður bara að vona að hægt sé að stoppa þetta því getið þið ímyndað ykkur hve þetta yrði hræðilegt...þó það væri ekki ég sem myndi lenda í því að vera sprengd upp þá gæti það verið vinir mínir, nágrannar, skólasystkin og pottþétt eitthverjir íslendingar því þeir eru á hverju strái hér. *panik*

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Eftir klósettferðina kom hann aftur og settist og hélt áfram að stara. Pabbinn var alltaf að tromma á fullu á lærin á sér. Mig langaði að segja "Bare rolig man" en ég hallaði mér bara aftur og lokaði augunum.

JA
Greinilega eitthvað sjúkt stjórnunar tilbeiðslu samband þarna, greyið strákurinn

Jóhann

7:25 f.h.  
Blogger Maja pæja said...

Það má ALLS EKKI sprengja þig..... knús sæta

3:57 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home