þriðjudagur, júní 27, 2006

Löggulíf

Helgin var stórskemmtileg og mörg absúrd móment áttu sér stað sem ég get yljað mér við og skemmt mér yfir. :)

Svo ég nefni nokkur atriði þá t.d "strippaði" ég í steggjapartýi, fór ég í desperat housewife partý þar sem stelpurnar voru í kjólum og í karakter næstum allan tímann, endaði ein með 4 dönum sem virtust vera að fíla íslendinginn sem talaði dönsku og svo var frekar absúrt þegar ég fór að fá skilaboð frá dönsku gaurunum daginn eftir sem langaði að fá mig til að koma í drykk uppí skip til þeirra. Já, yeah ræt. Einnig reyndi ég að sannfæra löggu um að handtaka Elvu greyið sem er svo hrædd við löggur.

Ég: Hey, ELVA ÞARNA ER LÖGGAN AÐ KOMA AÐ SÆKJA ÞIG!!
Elva: hættussu
ég næ augnkontakt við lögguna sem stoppa bílinn á Laugaveginum og ég bendi á Elvu og hrópa
HÚN ER ÞARNA!!!
Löggukarlarnir sitja skælbrosandi og virðast vera að fíla djókið
Ég fer til þeirra og þeir skrúfa niður
Ég: eruð þið ekki að leita að henni Elvu?
Löggur: jú...
Ég: já, hún er þarna...hún með fullt af stöffi á sér
Löggur: já, er það?
Ég: eruð þið til í að handtaka hana fyrir mig, það væri svo fyndið
Elva kemur
Elva: sko, þetta er sko djók....
Þá lítum við stöllur í aftursætið á löggubílnum og þar situr camerumaður með videocameruna á lofti beinda að okkur. Við vorum fljótar að láta okkur hverfa...
Held að þetta hafi verið toppurinn á löggudjókinu ef við birtumst sem fullu stelpurnar í lögguheimildarþætti. Mikið hlógum við :)

Fyndin helgi :D

10 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Greinilegt að ævintýrin eru að koma til þín, njóttu þeirra svo þú getir yljað þér við þau í næstu próftörn, og svo við höfum eitthvað að tala um næst þegar við sitjum og erum að deyja úr leiðindum yfir bókalestri :)

10:48 f.h.  
Blogger Margrét Lára said...

Hahaha snilld... hefði viljað sjá viðbrögðin hjá henni Elvu... en já kannski fæ ég að sjá þau fyrst þetta var allt fest á filmu múhaha ;)

5:51 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

þú ert æði! greyið elva, en vá þetta með myndavélina er náttúrulega fyndnast. Kemur í einhverjum heimildaþætti á rúv...
kv
heiðdís

11:56 f.h.  
Blogger Elva said...

þú gerir mig gráhærða !!!

en hahahaha ég er ennþá að hlægja...

3:06 e.h.  
Blogger benony said...

já, ég veit, ég er vond. Þetta voru líka endalok stríðninnar.

3:10 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

yeah right, tu hættir aldrei ad strida

4:22 e.h.  
Blogger benony said...

segir stríðnisdrottninginn sjálf :p

12:13 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

"Takes one to know one"

4:06 e.h.  
Blogger Gummi Jóh said...

Hver er hræddur við löggur? Og það íslenskar löggur. Hvað eiga þær að gera við mann?

10:17 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Þær flengja mann!! :p

7:09 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home