Vinna vinna
Það er síðasti dagurinn á morgun hjá mér á skurðdeildinni og ætla ég að njóta hans vel. Það eru lungnaaðgerðir sem ég ætla að fylgjast með og svo er ég að vonast til að læra að leggja þvaglegg eins og vindurinn. Ég er svo að fara að taka vaktir um helgina á bráðadeildinni vegna þess að ég skulda tvo daga og líka bara fyrir mig afþví maður lærir svo mikið af því að taka vaktir þar. Ég er búin kynnast stelpu sem er aðstoðarlæknir sem verður líka á vöktum þannig að það verður fínt.
Annars bíður Hrafnista eftir mér og ég er ágætlega spennt fyrir að byrja að vinna. Það verður gott að fara að sjá eitthverja peninga því það er ekki mikið til af þeim á þessum bæ. Verst er að ég er að vinna vaktir um helgar sem eru mótstæðar við helgarnar sem Elva og Tinna eru að vinna þannig að það verður erfitt að djamma....sorry Tinna :S
En mikið rosalega er þetta leiðinleg færsla, en þetta er bara svona það sem ég er að hugsa þessa dagana...ekki svo skemmtileg.
Annars bíður Hrafnista eftir mér og ég er ágætlega spennt fyrir að byrja að vinna. Það verður gott að fara að sjá eitthverja peninga því það er ekki mikið til af þeim á þessum bæ. Verst er að ég er að vinna vaktir um helgar sem eru mótstæðar við helgarnar sem Elva og Tinna eru að vinna þannig að það verður erfitt að djamma....sorry Tinna :S
En mikið rosalega er þetta leiðinleg færsla, en þetta er bara svona það sem ég er að hugsa þessa dagana...ekki svo skemmtileg.

8 Comments:
Týpíst, en ok.. Þá er það bara sunddeit í laugardalslauginni í staðinn á virkum dögum,, boost og sólbað.. Ef sumarið nær þá að koma á undan haustinu..
Hey ertu búin að hitta Ingrúnu og hjálpa henni að svæfa eða Margréti Odds og hjálpa henni að opna einhvern?
ps. verð að koma til þín bókinni sem ég er að lesa, mjög ítarlegar krufninarlýsingar í henni. Snilldarbók.
mér líst vel á að gera gott úr virku dögunum líka. Liggjum bara í bikiníi í rigningunni. Það er rokk.
Ég hef örugglega verið með Ingrúnu og Margréti í aðgerðum en ég veit bara ekki hvað þær hétu allar þarna. Nú er ég búin á skurðstofunni í bili.
Hlakka til að lesa þessa bók. Þú hefðir átt að fara í læknisfræði kerling. Það er alltaf svo gaman að segja þér frá læknalífinu. Þú ert svo áhugasöm. :)
já má ég líka koma með í sund?? Ég er komin með ógeð á djammi ;)
ps. þið megið alveg tala um krufningar ;)
Já drífum okkur allar í sund í vikunni í rigningunni. Hlakka til að liggja með ykkur skvísum á bakkanum.. sól eða ekki sól! Tökum bara íslendinginn á þetta..
Ohh já ég hefði átt að fara í læknisfræði,, hefði pottþétt gert það ef ég væri eins dugleg og þú sæta mín. Ótrúlega spennandi allt sem þú ert að gera og sjá.
en hvenær eigum við að djamma? ha?
Heyrðu, í þessari mögnuðu bók sem ég er að klára að lesa... Réttarlæknirinn í henni heitir Sara og er rauðhærð.
Keep up the good work Sea silver vitamin supplement Kool stride senior jogging stroller surveillance system free trial Oem barcode scanners goedkope Administration protonix auto refinancing estate loan mortgage real texas Norwich connecticut rental cars http://www.safe-sofa.info/How_to_fix_a_leaky_bath_tub_faucet.html Provigil and heart problems scrabble 1955
Skrifa ummæli
<< Home