þriðjudagur, júlí 11, 2006

Brjáluð helgi

Um helgina var ég eina hjúkkan á vakt á deildinni minni og það var eiginlega smá brjálað miðað við að ég fékk bara 4 daga í aðlögun. Á laugardeginum var mikil veikindi á deildinni minni þannig að ég var ansi stressuð en þetta hafðist allt saman. Ég sprautaði eins og ég hafði aldrei gert annað eða eins og við segjum það í gettóinu ég sprautaði eins og vindurinn.

Eftir brjálæðisvaktir naut ég mín líka. Ég fór út að borða á Tapas með Ásu, Elvu og Dísu og það var yndislegt. Keyptum 11 Tapasrétti sem við deildum á milli okkar þannig að við fengum smakk af allskonar réttum. Þetta var alveg frábært. Svo keyptum við okkur súkkulaðiköku dauðans á eftir sem var bara eins og hreint súkkulaði...nammi namm

Á sunnudaginn hittumst við familían í grasagarðinum þar sem við vorum að kveðja Silla bró sem fór til London í dag til að klippa Hollywoodmynd. Karlinn alveg að meika það. Við lékum okkur í grasinu og það var svo frábært veður þannig að litlu krakkarnir og við stóru krakkarnir gátum aldeilis notið okkar.

Nú er ég að fara að búa til Sushi með Hás stelpunum þannig að lífið er ljúft. Elska vinnuna mína og á fullt af æðislegu fólki í kringum mig.

Farin í sushi...túrílú

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Við stelpurnar gerðum ekki sushi eins og ég hélt... við borðuðum svona Raclett. Rosa gott og gaman

2:19 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Jeminn eini hvað þetta eru falleg börn! Jedúddamía :)

8:42 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home