Smá updeit
Jæja, núna stödd á Íslandi að upplifa ævintýrin stóru sem eiga að einkenna þetta sumar 2006.
Ég beið ekki eftir þeim heldur vaknaði snemma daginn eftir heimkomu og var mætt upp á Landspítala þar sem ég byrjaði verknámið mitt í skurðlækningum. Ekki hafði ég trúað hvað þetta er æðislegt og ég skemmti mér stórvel á hverjum degi þarna á skurðdeild að sjá inní yðrin á fólki og vera grilluð af sérfræðingunum sem hafa gaman að, að sjá mig engjast.
Ég fékk fljótt kennslu í að skrúbba mig inn og það er voða ceremonía í kringum það. Eftir skrúbb þarf ég að koma inn á skurðstofuna og hitta skurðhjúkku sem klæðir mig í og ég má ekki snerta neitt. Má heldur ekki gleyma að koma inn með maskann fyrir andlitinu. Fyrsta daginn baunaði ein hjúkkan á mig skotunum hehehe, hún sagði þar sem ég stóð stíf með hendurnar fyrir framan brjóstkassann sem ekki máttu snerta neitt "Þú værir ansi góð á vaxmyndasafninu múahahahaha". Ég var svo stressuð að ég svaraði bara "já, hehe, einmitt" en get hlegið að þessu núna því ég hef örugglega verið ansi fyndin svona stíf.
Fyrsta daginn þegar ég var nýbúin að fá kennslu í skrúbbinu spurði ég einn sérfræðingin í sakleysi mínu hvort ég mætti fylgjast með honum í aðgerð. Hann sagði þá "Að sjálfsögðu....viltu ekki bara skrúbba þig inn???" Ég vildi það ólm og skrúbbaði mig bak og fyrir og kom svo inn á skurðstofuna stíf og fín. Sérfræðingurinn benti mér á að standa á móti honum og svo hófst aðgerðin og ég var að aðstoða hann....bara ein!!!! Ég fékk smá gæsahúð því ég bjóst ekki við að mér yrði treyst fyrir þessu. Núna er ég búin að aðstoða nokkrar aðgerðir og tvisvar ein með sérfræðingi.
Já, þetta eru sko ævintýri en bara byrjunin!!!
Ég er annars að lesa svo ótrúlega bók sem er einsskonar ævisaga um pólskan mann sem er gyðingur og sem hefur tvisvar sinnum misst alla fjölskylduna sína. Mömmu sína og pabba og bræður í stríðinu þar sem gyðingum var nær útrýmt af nasistum í heimstyrjöldinni síðari og svo held ég að hann hafi misst konu sína og börn í bruna seinna en ég er ekki alveg komin svo langt í bókinni. Það eru ótrúlegar lýsingar í bókinni og ég stend alveg á öndinni við lesturinn. Ég mæli með henni, hún heitir "Ég lifi" og er eftir Max Gallo um ævi Martin Gray.
Svo er nýtt til tíðinda að Toggi félagi er kominn á samning og er að gefa út disk. Hérna getið þið heyrt lag með honum. Ansi gott lag hjá karlinum og ég verð bara að segja að ég er spennt að heyra allan diskinn.

6 Comments:
Gaman að fá fréttir af þér sæta! Ein að brillera á skurðdeildinni, en ekki hvað? Kem heim 24. júní, heyrumst!
Valdís
Hehehe Valdís er búin að koma með kommentið sem ég ætlaði að koma með ;) Nema hvað ég kem ekki fyrr en 1. júlí hehe ;)
Hey komdu svo með skemmtilegar djammsögur fyrir okkur fáu sem eru enn að mygla í prófum! Það ætti að banna að hafa próf eftir Jónsmessu ;)
ok, ég er með eina góða eftir gærkvöldið ;)
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
Úúú bíð spennt að heyra ;)
Skrifa ummæli
<< Home