Ég á góða vini...
Mér var boðið í mat núna tvö kvöld í röð af góðum vinum og er því vel pökkuð og ready fyrir vikuna.
Kvöldið í kvöld var samt eitt af þessum kvöldum þar sem ég hugsa "ahh, fjandakornið, nú hefði ég þurft að eiga kærasta til að hafa með mér", og þá er ég bara að hugsa um fyrir strákana ekki mig. Ég held nefnilega að kærastar vinkvenna minna ættu auðveldara með að höndla mig ef ég hefði gaur með sem gæti dempað mig niður og spjallað um græjur og tól við þá.
Í kvöld var ég að reyna að skipta mér til helminga... Ræddi við stelpurnar um gulrætur og skipti svo um ham og fór að klóra mér í pungnum með strákunum. Ég hef stundum tekið uppá því að fá mér í vörina með þeim og kvarta yfir hvað tóbakið sé vægt!!!!
Mér tókst ansi vel til í kvöld finnst mér þar sem ég var allt í einu orðin ein eftir með strákunum yfir stelpumynd og stelpurnar farnar að dúlla sér eitthvað frammi í eldhúsi þegar annar kærastinn sagði "hey stelpurnar bara hættar að horfa á stelpumyndina og við einir að horfa". Þá sagði ég "nei, bíddu er ég ekki hérna eftir". þá litu gaurarnir á mig og sögðu í kór "þú ert ekki stelpa!!!". Ætli það hafi ekki bara verið Benóný sem sat þarna í sófanum með þeim...hahaha svei mér þá!

1 Comments:
ha ha ha ha .. þú getur verið svo brjálæðislega fyndin þegar að þannig liggur á þér ;)
Skrifa ummæli
<< Home