þriðjudagur, maí 23, 2006

Að borða gulrætur....

.....er ekki góð skemmtun.

Svei mér þá ef mér finnst bara ekki það leiðinlegasta sem ég geri að borða gulrætur....en ég keypti samt 2 kg í gær af gulrótum. Þið gætuð spurt hvorslags masókisti ég væri, að kaupa mér heil 2 kg af svona kanínumat. En já, svarið er "DANSKI KÚRINN". (leið yfir einhvern?) Þetta er víst alveg málið. Maður fær öll næringarefnin og fær að borða á sig gat, bara af réttu fæðunni.

Ég er algjör nammi- og kókgrís og átti því þvílíkt bágt með mig í dag yfir bókunum. En ég lifði daginn af og vonandi verður morgundagurinn betri. Ein vinkona mín er í sjokki yfir mér, að ég sé að reyna að afeitra mig af sykri í miðjum próflestri. En það er nefnilega bara aðalástæðan, ég er svo þreytt af öllum sykrinum og næringarleysinu og næ lítilli einbeitingu. Þannig að ég er að vona að með þessum holla mat og þessari miklu næringu skerpist heilinn minn og ég verði bara fluggáfuð. Ég ætla sumsé að nota gulræturnar sem meðal fyrir minnið, og svo spillir ekki fyrir að vera megabeib í sumrinu og sólinni. (gáfuð og beib, vóhhh undrakúr!)

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Bættu við hnetum og þá færðu enn meiri af hollri orku og betra bragð:) Svo er líka rosa gott að borða sellerý með salsa sósu. Ef þú borðar sellery það er að segja...

4:31 e.h.  
Blogger benony said...

takk Tinna! alltaf gott að fá hugmyndir yfir hluti sem maður má borða!

ÉG var rétt í þessu að borða gríska jógúrt með ferskum jarðaberjum.

10:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Döhhh Sara, þú ert og verður MEGABEIB... þarft ekkert að vera á kanínufóðri til að vera flottust ;) En þar sem það er bara hollt og gott þá er það bara fínt mál ;)

3:57 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home