Á skurðdeild ég held...
Ég fékk bréf frá skurðdeild Landspítalans um áætlun þeirra þriggja vikna sem ég mun vera hjá þeim í verknámi eftir að ég kem heim. Ég á að vera 2 vikur á colon-rectal (þarma-og endaþarma) skurðdeild og 1 viku á hjartaskurðdeild. Ætli ég verði ekki í því að skoða sjúklingana og skrifa skýrslur. Vonandi fæ ég líka að taka þátt í skurðaðgerðunum...halda í klemmur eða eitthvað svoleiðis, eða kannski fæ ég að ganga frá og sauma saman. Hver veit. Ég veit bara að fyrstu vikurnar á colon-rectal verða himnaríki fyrir Benóný þar sem karlinn er alltaf svolítið hrifinn af rössum. :p

4 Comments:
vá hvað rassadeildin á eftir að smellpassa ... vá gætir ekki hafa fengið betri deild!
Heldurðu að þú megir taka með þér partner? Einhvern til að halda í hendina á þér yfir einni eða tveim aðgerðum?? stórum! Vá hvað ég öfunda þig að fá að verða viðstödd og sjá þegar fólk er literally opnað!
Tinna, þú ættir bara að skella þér í lækninn, ég meina why not?!
Þetta er sko alveg málið fyrir þig, "kúkaskurðdeild"
:)
hlakka til að heyra fleiri kúkasögur sem að bætast við í safnið.
kv. Bryndís
Skrifa ummæli
<< Home