miðvikudagur, maí 17, 2006

RENT

Ég horfði á RENT kvikmyndina í gær með Davíð og það er nú meira hvað ég er hrifin af þessu verki. RENT vekur líka hjá mér minningar þar sem ég var að vinna í Loftkastalanum þegar það var sýnt þar. Gaman að sjá þessa ensku útgáfu þar sem söngvararnir eru svo hryllilega góðir og oft var ég með gæsahúð meðan leikararnir tækluðu tónstigann.

Ég á svo pottþétt eftir að eiga qualitytime með HÁS að horfa á myndina í sumar þar sem við eigum minningarnar frá Loftkastalanum saman.

Annars er ég bara að lesa og leiðist...segið mér eitthvað fallegt

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Þú gafst söngvurunum ekkert eftir, það var virkilega gaman að horfa á RENT með þér :)

9:27 e.h.  
Blogger Dilja said...

þér skýli ég rassa mín og vernda ég skal þig:)
annars hlakka ég bara ossamikið til að taka HÁS míting á þetta í sumar! vei veih

4:07 f.h.  
Blogger benony said...

DJ, við getum kannski opnað lítið kaffihús í Santa Fe í sumar.

Ég veit bara að í sumar verður gaaaaaman

11:14 f.h.  
Blogger Ásdís Eir said...

Þú ert svo sæt.

12:58 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Plönum Rent kvöld í sumar! Heimakvöld samt því við Maj fórum á myndina og ætluðum svo á kaffihús en urðum að offa því þegar við litum í spegil.. Úff það voru sko rauðbólgin og útgrátin augu sem héldu heim á leið það kvöld. Mér fannst kastala Santa Fe samt betra..

7:18 e.h.  
Blogger Maja pæja said...

Já sammála með kastalasantafeið.. það var miklu betra.. og ég hlakka svo til að hittast í HÁS... Rent var geggjuð

3:50 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home