Sól
Það er búið að vera svo brjálæðislega gott veður síðan ég kom hingað út (7-9-13) og ég klæðist engu öðru en pilsi og bol og nýt mín í botn. Ég er samt að lesa undir próf með henni Bryndísi minni þannig að á heitasta tímanum erum við að brjóta heilann yfir bókunum en ég nýt þess samt því það er allt svo bjart og gott að setjast út í pásum.
Eftir að ég kom heim í gær kíkti Margrét Lára á mig og við fórum að kaupa okkur kebab. Ég er búin að finna mér minn uppáhalds kebabkarl. Hann er svona eldri maður og mesta krúttið þannig að maður brosir um leið og maður sér hann og alveg þangað til maður fer út. Hann er með allskonar litla miða út um allan staðinn og svo tók ég eftir því að þegar hann var að rúlla upp duruminu þá var eins og hann væri að dansa. Ég held alveg ómeðvitað, dúllan hans.
Jæja, ég bið að heilsa....farin uppí skóla.

1 Comments:
Játs hann er sko rosaleg dúlla og gaman að kaupa kebab hjá honum... enda ýkt góðir líka ;)
Skrifa ummæli
<< Home