þriðjudagur, maí 15, 2007

Einbeitingarleysi

Erfitt líf...úff, segi svona, bara svo erfitt að einbeita sér að lestri bóka. Það er kannski afþví þetta er búið að vera svo mikil törn en svo er þetta enganveginn búið því ég á tvær blokkir eftir. En nú þarf ég að sparka í rassinn á mér. Það verður gert einhvernveginn með balletstökki og svo flippa ég snöggt með hælana í rasskinnarnar og þá fer allt í gang. Vitiði bara til.

Byrjuðum í bæklun í dag og verð að viðurkenna að ég fékk smá sjokk...en ég læri þetta þá bara. Rosalega fyndið að skoða Röntgenmyndir. Röntgenlæknarnar sem eru að kenna hafa önnur augu en við hin. "Og hérna sjáið þið brotið" og bendir eitthvað í beinið sem lítur bara út eins og venjulegt bein. Ekki gat ég séð nein merki um brot... Svo benti hún og gerði svona hring til hliðar við lærlegginn "og hér sjáið þið vökvasöfnun..." Ég sá ekki neitt hahahaha
Mér leið smá betur þegar krakkarnir voru flissandi allt í kringum mig. Ég var þá ekki sú eina sem sá ekki neitt athugavert við myndirnar. Ég er að hugsa um að eyða deginum á morgun í að þjálfa röntgenaugað mitt.

Já, og svo hef ég grun um að það verði hönkar að kenna mér næstu daga því bæklunarskurðlæknar eru allir eitthvað svo miklir töffarar, eða ég ímynda mér það. Það þarf að taka svo á að skera upp liði, þið vitið hné og mjaðmir. Þetta er allt svo fast og þess vegna aðallega svona sterkir og töff strákar sem velja þetta sem sérgrein. Það var allavega einn svona Pradatýpugaur að kenna mér í dag. Hann talaði reyndar svo hátt og hratt að ég var viss um að hann yrði raddlaus eftir fjóra tíma kennslu í dag. Hann á að kenna okkur aftur í næstu viku og þá hlýtur hann að vera búinn að jafna sig, þessi elska.

Eftir fund með Kenyahópnum skellti ég mér á hlaupabrettið ásamt henni Elvu minni og hljóp eins og vindurinn. Ég er farin að æfa nokkrum sinnum í viku aftur...ekki það að ég sjái mikinn mun á mér en það er bara eitthvað svo gott eftir á.

Lifið heil...þið heyrið frá mér á morgun

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Já þú verður farinn að lesa röntgenmyndir eins og ekkert sé á now time.
Annars verðuru bara að bjóða Heiðrúnu í heimsókn og láta hana hjálpa þér ;)
En er það ekki annars svona svarturskuggi/grá þoka = vökvi og beinbrot þá kemur líka svona skuggi, þar sem á ekki að vera eða hvað???
æjj.. annars fer ég nú bara yfirleitt að hugsa um eitthvað annað þegar þeir taka upp röntgenmyndir. En það gengur víst ekki upp sú tækni fyrir þig, þar sem þú þarft að nota þetta eitthvað í framtíðinni hugsanlega.

kv. Bryndís

9:14 f.h.  
Blogger Heidrun Maria said...

Hehehe nóg á ég af bókum og myndum ;)

10:42 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hehe já greinilega svona fedtvæskespejl þarna!! og ENGINN í stofunni að sjá það! hehehe..spennandi að vita hvaða hönk kemur á morgunn;)

12:46 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home