þriðjudagur, maí 08, 2007

Strippdagur

Í dag var strippdagur í skólanum. Þeir eru nokkir á ári dagarnir þar sem við þurfum að henda af okkur fötunum og skoða hvort annað. Í þessari viku erum við að fjalla um bakverki og hryggskemmdir sem er svolítið þurrt efni en ég á pottþétt eftir að hitta marga sjúklinga með þetta vandamál á mínum ferli þannig að það er eins gott að vera með á nótunum. Við vorum því að skoða hryggi hvors annars í tíma í dag og það var nú ekkert að sjá þar sem hryggir okkar voru bara eðlilegir hryggir....engir vandræðahryggir á okkar bæ.


Annars er byrjað að rigna og það er kannski bara gott því þá helst maður inni yfir bókunum. Annars eitthvað smá slöpp en ég var að súpa á smá járni áðan því ég held að ég hafi bara verið blóðlítil.

Í Odense er stemmningin að magnast fyrir Eurovision. Það er planað grill-europartý á laugardaginn en svei mér þá ég er meira spennt fyrir fimmtudeginum, því þá erum við jú með!! Þið megið endilega bjóða mér heim óðinsvéingar :p

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Myndi bjoda ter ef eg ætti sjonvarp sem virkar, ;D

12:31 e.h.  
Blogger Margrét Lára said...

Hey jó, verðum að gera eitthvað líka á fimmtudaginn!! Og já Bryndís, koma þú og Gummi ekki í grillpartýið á laugardaginn ;)

5:42 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

jú við missum sko ekki af eurovision gleði :D

5:52 e.h.  
Blogger Heidrun Maria said...

hey Bryndís ég var búin að segja að þið mættuð fá okkar sjónvarp. Það virkar nú bara ágætlega og er bara hérna út í geymslu :)

Hehe sorrý Sara mín ætlaði nú ekkert að nota kommentin þín til að auglýsa ;)

Kveðja Heiðrún

10:29 e.h.  
Blogger Margrét Lára said...

Hehehe sorrý Sara, Bryndís er bara vinsælli en þú... skv. kommentakerfinu ;) Djók!

10:56 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hahhahha... ja er i vinsældakeppni herna. En var bara að missa sjónvarpið sem við vorum með í láni fyrir 2 vikum síðan og er í prófum, hef ekki gott af sjónvarpi núna :D En takk fyrir boðið, reikna svo með að verða rík í haust og geta keypt sjónvarp þegar "eiginmaðurinn" verður farin að vinna.

8:45 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home