mánudagur, maí 14, 2007

Helgin mín

Já, við héldum risa grill-Eurovisionpartý í sal á kolleginu við spítalann. Það var góð mæting og eftir að hafa borðað á okkur gat af yndislegum grillmat þá horfðum við á Eurovisionkeppnina.

Ég tók mér stöðu og ég ásamt fólkinu sem sat mér næst tókum þessu öllu saman rosalega alvarlega og spáð var í spilin allt fram til enda leiks. Moldova var mitt uppáhalds....ekki afþví að það sást í mottuna hennar heldur afþví að hún söng vel og var flott á sviðinu. Ég er enn í hálfgerðu sjokki yfir úrslitunum en þau segja mér bara að þrátt fyrir að ég sé mikið Eurovision-fan þá hef ég ekkert vit á þessu. Serbía var ekki ofarlega á mínum lista, hvorki í úrslitunum né í undankeppninni. Mér fannst þetta hálf hlægilegt atriði bara þar sem gellurnar voru grenjandi fyrir aftan og allt voða átakalegt án þess að nokkur skyldi um hvað þær voru að syngja.
Ég verð víst að viðurkenna að Gummi hennar Bryndísar vann því hann spáði Serbíu sigri og það er ekki í fyrsta skipti sem hann vinnur í þessari spádómskeppni okkar. Ég er mikið að spá í að horfa ALDREI á Eurovision aftur með því pari!! Ekki það að ég sé tapsár...nei nei nei.

Ný skólavika að hefjast og á morgun byrjum við að læra um bæklun. Vonandi spennandi þó ég brenni ekki sjálf fyrir því....en það er aldrei að vita

hérna koma myndir frá gærkvöldinu...gjöriði svo vel

3 Comments:

Blogger Dilja said...

hvað er sara með í höndinni??

ps. gaman að sjá mikla hreyfingu á blogginu hjá þér!

1:47 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

já, hún er dottin í svaðið :p

Held samt að hún hafi verið að halda á þessu fyrir Elvu fylliraft á meðan hún fór og tók myndir.

Já, takk.... ég stefni á að vera dugleg núna

7:39 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir síðast:) Ég var alveg á að Goggi graði myndi taka þetta fyrir Tyrkina, tíhí... þetta var nú stuð þó lögin hafi verið þeim mun hallærislegri sérstaklega þetta serbíu lag... spurning um að senda eirík fjalar frekar næst... þá get ég tekið eftirhermuna í næsta európartyi. knús og góða skemmtun í bæklun:S Heiðdís

10:59 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home